16307 - Innleiðing Sharepoint Online hjá Reykjavíkurborg
16307 - Innleiðing SharePoint Online hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg hefur þegar innleitt hluta af Microsoft 365 umhverfinu og nýtir þjónustur á borð við Teams og OneDrive, sem byggja á SharePoint. Nýting SharePoint er þó misjöfn eftir sviðum og starfseiningum, sem eru mislangt komin í innleiðingu og notkun. Sett hafa verið upp ákveðin SharePoint svæði sem ætlað er að byggja áfram á, en fyrri innleiðingar á tveimur sviðum hafa sýnt fram á þörf fyrir heildstæðari og skipulagðari nálgun. Starfsfólk borgarinnar er rúmlega 11.300 og hefur M365 leyfi. Reykjavíkurborg er skipt upp í sjö svið, þrjú kjarnasvið og fjögur fagsvið sem er síðan skipt upp í starfsstaði, skrifstofur, deildir og teymi. Þekking og reynsla er breytileg, sem kallar á markvissa fræðslu og breytingastjórnun samhliða innleiðingu. Mikilvægt er að tryggja samræmda uppbyggingu, skýra stýringu og góða yfirsýn yfir SharePoint og Teams svæði til að styðja við skilvirka samvinnu og nýtingu.